Kokkur ársins 2026
30.03.2026gær fór fram úrslitakeppnin um titilinn Kokkur ársins 2026. Að lokinni keppni fór verðlaunaafhending fram við hátíðlega athöfn á NASA í Hótel Parliament, þar sem úrslitin voru kunngjörð í frábærri keppni
1. sæti – Ísak Aron Jóhannsson
2. sæti – Hugi Rafn Stefánsson
3. sæti – Wiktor Pálsson
Klúbbur matreiðslumeistara á veg og vanda að keppnunum Kokkur ársins, Grænmetiskokkur ársins og Sjávarréttakeppni sem haldnar voru um helgina í húsakynnum IKEA. Keppnirnar heppnuðust afar vel og skapaði IKEA glæsilega og faglega umgjörð þar sem gestir fengu tækifæri til að fylgjast náið með.
Keppnin um Kokk ársins var haldin í þrítugasta sinn í ár og markar það mikilvæg tímamót í íslenskri matreiðslu. Frá upphafi hefur Bjarki Hilmarsson, yfirkokkur á Hótel Geysi, haft umsjón með keppninni og gegnt lykilhlutverki í þróun hennar og uppbyggingu.
Í úrslitum um Kokk ársins kepptu Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi, Guðmundur Halldór Bender frá Mister Iceland, Hugi Rafn Stefánsson frá Black Sand Hótel, Wiktor Pálsson frá Nomy veisluþjónustu og Hinrik Örn Halldórsson frá Lóla Restaurant.
Eins og áður segir þá stóð Ísak Aron Jóhannsson uppi sem sigurvegari og hlaut titilinn Kokkur ársins 2026. Í öðru sæti varð Hugi Rafn Stefánsson og í þriðja sæti Wiktor Pálsson.
www.veitingageirinn.is greindi frá.



