Aðalfundur 5 nóvember 2026

05.11.2026

Aðalfundur félagsins fór fram fimmtudaginn 5 nóvember í húsi matvælagreina að Stórhöfða 31 í Reykjavík, mæting var þokkaleg en hefði mátt vera betri. Eyjólfur Kolbeins fromaður setti fundinn rúmlega tíu og fór í venjuleg fundarstörf og ritari fór yfir fundagerð síðasta aðalfundar. Formaðurinn fór síðan yfir reikninga síðasta starfsárs og að lokinni yfirferð voru þeir samþykktir mótatkvæðalaust.

Farið var yfir kynningarbælinginn sem ákveðið var að ráðast í eftir síðasta aðalfund og var honum dreift á borðin og félagar beðnir að kynna félagið fyrir sínum yfirboðurum.

Kosning stjórnarmanna var liður á dagskrá og ber það helst til tíðinda að Eyjólfur sagðist ætla að láta þetta gott heita eftir tíu ár í formannsstóli og því var kosinn nýr formaður og var það Ásbjörn Pálsson sem starfar hjá HSN á Húsavík og bjóðum við hann velkominn til starfa. Gjaldkeri og ritari verða sömu áfram og meðstjórnendur og varamaður Kristján Guðnason, Íris Maak og Jónína Sigurðardóttir. Skoðunarmenn reikninga Jóhann Sveinsson og Þórhallur Harðarson, og kynningarfulltrúi Þorvaldur Þorvaldsson.

Fundurinn ákvað að hafa næsta þingstað 2027 Stykkishólm og í lok fundarinns tók Ásmundur Pálsson nýji formaðurinn okkar til máls og sagði með góðri hjálp félagsmanna myndum við gera okkar besta og hjálpast að við að efla félagið og fá inn nýja félaga, og jafnframt þakkaði Ásmundur fyrir traustið sem honum væri sýnt að taka að sér formennsku í YEHÍ.

Eyjólfur stóð upp og afhenti Ámundi fundarhamarinn góða við lófatak fundarmanna.

 

TS.