Þingið fimmtudagur 5 nóvember

05.11.2026

Eftir góðann aðalfund var dagskrá haldið áfram og nú var mættur til okkar Þórir Erlingsson forseti klúbbs matreiðslumeistara, og var hann með fróðlegt erindi til okkar t.d með starfið og umfangið í kringum kokkalandsliðið er miklum meira en maður heldur frábært starf hjá klúbbnum í þeim efnum. Þórir fór síðan í hin ýmslu fagmál og kokkanám með okkur og var 

etta frábært erindi hjá kappanum sem er að gera góða hluti með sínu fólki í Klúbbi matreiðslumeistara. Að loknu erindi Þóris var okkur boðið í góðann hádegisverð í mötuneyti hússins. Síðan var komið að næsta erindi sem var flutt af Ólafi frá Nemastofu, en hún stuðlar að fjölgun faglærs starfsfólks m.a í matvælageiranum og einnig efla kennslu og þjálfun nema til að stuðla að gæðum í námi í iðngreinum, sem skilar sér í meiri fagmennsku í hinum ýmslu fag greinum.

Næsta erindi flutti Hinrik Carl Erlendsson og kynni hann forritið Grammið sem er gag nvirkt kennslu- og verkfærasafn fyrir rekstur eldhúsa. Markmiðið er að tengja fræði og verklegt starf: reiknivélar fyrir kostnað, hráefnisútreikninga og rýrnun; verkefnabanki með kennslulýsingum; og einfalt kerfi til að vinna og meta verkefni. Allt efni er staðfært að íslenskum aðstæðum, með áherslu á ábyrgan rekstur og minni sóun.

Grammið styður fagfólk við að vera betur undirbúið til að reka sína staði og styður nemendur við að skilja mikilvægi þess að þekkja hráefniskostnað — ásamt mörgu öðru — og hjálpar þeim að yfirfæra kenningar í raunveruleg verkefni: frá grunnhugmyndafræði reksturs yfir í matseðlagerð, verðlagningu og gæði þjónustu. Lögð er rík áhersla á að nýta gervigreind til að fá skjóta endurgjöf þegar þátttakendur spreyta sig á verkefnum og fá þannig strax að vita hvort þeir séu á réttri leið.

Að þessu erindi loknu héldu fundarmenn niður í Laugadalshöll til að skoða sýninguna Stóreldhúsið 2026 sem var hin glæsilegasta og þar er ávalt tekið vel á móti fólki af sölumönnum og eigendum hinna ýmsu fyrirtækja sem tengjast stóreldhúsum og veitingagerana.

Við félagar í YEHÍ vilju þakka öllum fyrir þeirra erindi og höfðinglegar móttökum þetta er okkur ómetanlegt til að ná að sinna okkar starfi betur og af meiri fagmennsku.

 

TS.

 

 

 

 

Fleiri myndir í myndasafni