Þingið 2026 föstudagur
06.11.2026Um tíuleytið mætti hópurinn á Landspítala Háskólasjúkrahús til skoðunar og fræðslu og þar tók á móti okkur Viktor Ellertsson deildarstjóri Veitingaþjónustu Landspítalanns. Viktor fræddi okkur um starfsemi matvælageiranns á LHS og einnig varpaði hann boltanum á félaga okkar hann Halla sem er starfandi matreiðslumeistari á LHS. Viktor fór vel yfir ferlið í nútíð og framtíðarplön í máli og myndum og
hvatti hann okkur til samstarfs í þeim liðum sem hægt er að samnýta í fræðslu, framkvæmdum og skipulagningu. Að loknu erindi var okkur boðið til hádegisverðar og eftir matinn var sest niður í gott spjall um matvælageirann og önnur tengd málefni. Þessi heimsókn var ánæguleg og árangusrík og skilaði okkur nokkurum umsóknum í félagið sem er frábært, en það er nauðsynlegt að alltaf sé endurnýjun til að fá sem breiðastan hóp fagmanna í félagið.
Við þökkkum Viktori og Landspítalanum fyrir frábærar móttökur og fróðlega heimsókn og velvild í okkar garð. A lokinni heimsókn á LHS var farið aftur í Laugardalinn og haldið áfram að skoða sýninguna Stóreldhúsið 2026.
Þá var komið að lokum þessa þings og var endað á því að koma sama til kvöldverðar á Sumac við Laugarverg og borða saman og ljúka þessu þingi með ánægjulegri kvöldstund.
Kæru félagar og velunnarar takk fyrir frábæra tvo daga og að ári verðum við klár í Stykkishólm !
TS







